fbpx
Frí sending með Dropp ef þú verslar fyrir 15.000 kr eða meira!

Þurrbursti úr valhnotu með skafti

5.200 kr.

Einstaklega fallegur líkamsbursti með skafti og sisal hárum sem hægt er að taka af og fellur burstinn þá vel í lófa.

Skrúbbar varlega af dauðar húðflögur, örvar blóðflæðið til húðarinnar, stuðlar að endurnýjun á húðfrumum og gerir húðina mjúka og slétta.

Á lager

Vörulýsing

Til að ná bestum og sjáanlegum árangri er mælt með að þurrbursta húðina ca þrisvar sinnum í viku í ca 5 mínútur í senn.

Burstið þurra húð, byrjaðu á fótunum og fikraðu þig uppá við og burstaðu alltaf í átt að hjartanu. Notaðu stuttar strokur og ekki nota mikið afl svo að þú særir ekki húðina. Mælt er með hringlaga strokum á magasvæði og handakrika. Burstaðu hendur frá fingrum og upp að öxlum með stuttum strokum. Dásamleg og náttúrleg aðferð sem gott er að gera í rólegheitum og dekri.

Efni: Valhnota, sisal burstahár, strigaól.
Lengd bursta með skafti 45 cm + upphengiól. Breidd bursta 9 cm.

Framleiðsluland: Taiwan
Umbúðir: Engar

Vörumerki Eco Bath London

0
0