fbpx
Frí sending með Dropp ef þú verslar fyrir 15.000 kr eða meira!

Friendly – Patchouli og Sandalviðar sápa

750 kr.

Notaleg og hlý sápa með ilm úr Patchouli og rauðum Sandalvið, góð heilandi sápa með framandi sólarangan.

Patchouli ilmkjarnaolíur eru þekktar fyrir hlýjan viðarangan og bakteríudrepandi eiginleika sem fegra húðina og auðga kynhvötina. Olíunni er blandað við duft úr rauðum sandalvið, sem er þekktur fyrir að viðhalda heilsu húðarinnar, ásamt þremur tegundum af ilmkjarnaolíum. Úr verður blanda sem er einstaklega náttúruleg og rakagefandi fyrir líkama og sál.

Á lager

Vörulýsing

Frábær Friendly sápustykki sem eru handgerð úr Kókosolíu, Shea Butter, Ólífuolíu, Patchouli ilmkjarnaolíu, dufti úr Sandalvið og vatni.

Sápurnar eru án pálmaolíu, parabena, súlfats, tríklósan, phthalate (þalöt) og eru ekki prófaðar á dýrum.

Umbúðir eru úr endurunnum pappír, eru án plasts og þær má endurvinna.

Friendly sápurnar eru jafnframt skráðar og samþykktar hjá The Vegan Society og Cruelty Free International ásamt því að fá hæstu einkunn hjá The Ethical Consumer.

Innihald: Sodium Cocoate, Sodium Olivate, vatn, Butyrospermum Parkii Butter (Shea Butter), Pogostemon Cablin (Patchouli) essential oil og Santalum Album (Sandalwood) powder.

Framleitt af Friendly í Bretlandi.

Friendly Soap er lítið handverks fyrirtæki í Bretlandi sem framleiðir sápur með hreinni samvisku. Markmið og hugsjón þeirra er að framleiða sápur sem hafa eins lítil skaðleg áhrif á náttúruna og heilsu fólks og unnt er. Starfsemin miðast að því að starfa að heilindum þar sem siðferði, umhverfið og náttúran er framar hagnaði fyrirtækisins.

0
0