fbpx
Frí sending með Dropp ef þú verslar fyrir 15.000 kr eða meira!

Lífrænn Svitalyktareyðir 60ml – Lavender

3.250 kr.

Náttúrulegt svitakrem með ferskum lavanderilmi sem hentar fólki á öllum aldri.

Kemur í veg fyrir svita og dregur í sig raka á náttúrulegan hátt. Er án áls, alkóhóls, kemískra efna og annarra íblöndunarefna.

Lífrænt, vegan og betri valmöguleiki fyrir fólk og umhverfi.

Á lager

Vörulýsing

Vörulýsing

Naturlig Deo er lífrænn, kremkenndur svitalyktareyðir sem framleiddur er úr örfáum sérvöldum náttúrulegum efnum þar sem tekið er fullt tillit til manna, dýra og náttúrunnar. Hann er án áls, alkóhóls, kemískra efna og annara íblöndunarefna.

Notkun: Taktu smá krem úr krukkunni með fingrunum og berðu þunnt lag á þurra húðina í sitthvorn handakrikann. Leyfðu kreminu að þorna áður en þú klæðir þig, gæti tekið u.þ.b eina mínútu. Ekki setja aðra umferð.

Leiðbeiningar: Notið ekki ef húðin er viðkvæm eða skrámuð. Hættu notkun strax ef þú færð útbrot eða kláða. Geymist við stofuhita en athugið að kremið verður þynnra í stofuhita.

Gott að vita: Sumum finnst eins og þeir svitni og/eða lykti meira fyrst á eftir að notkun hefðbundins svitalyktaeyðis með áli er hætt. Ef þetta er eitthvað sem þú kannast við, berðu þá svitakremið oftar á þig eða eftir þörf. Ekki er ráðlagt að bera kremið á sig strax eftir rakstur eða á meðan húðin er enn viðkvæm. Hæfilegt og vel gerlegt er að raka að kvöldi og bera kremið svo á sig næsta morgun því kremið eyðir þeirri lykt sem þá er komin.

Innihald og eiginleikar.

  • Lífræn lyktarlaus kókosolía sem er rakagefandi og bakteríudrepandi.
  • Lífræn kornsterkja sem gleypir raka.
  • Matarsódi sem upprætir svitalykt.
  • Lífræn jójóbaolía, mjúk og rakagefandi.
  • Lífrænt Carnauba vax sem verndar og þykkir.
  • Lífræn lavender olía sem er bakteríudrepandi og gefur náttúrulegan ilm.

Innihald: Cocos Nucifera Oil, Zea Mays Starch, Sodium bicarbonate, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Copernicia cerifera cera, Lavandula Angustifolia Oil. Linalool, Limonene og Geraniol frá lavender olíunni.

Stærð: 60 ml. krukka getur dugað í þrjá mánuði eða lengur, fer eftir notkun.

Tengdar vörur