fbpx
Frí sending með Dropp ef þú verslar fyrir 15.000 kr eða meira!

Andlitsserum með Frankincense, rós & bakuchiol 25ml.

3.890 kr.

100% náttúrulegt rakagefandi og styrkjandi andlitsserum sem dregur úr einkennum öldrunar. Inniheldur Jojoba olíu, Ólífu squalene sem eykur raka og verndar gegn rakatapi, Frankincence, Rós og Bakuchiol sem er 100% náttúrulegur valkostur við Retinól (A-vítamín).

Andlitsserum sem getur stuðlað að þéttari og bjartari húð, hentar öllum húðtegundum og er vegan.

Amphora Aromatics.

Á lager

Vörulýsing

Berist á hreina húð kvölds og/eða morgna. Má nota eitt sér eða með öðru rakakremi.

Hvað gera innihaldsefnin fyrir þig?

Jojoba olía: Einn besti eiginleiki Jojoba olíu er hvað hún líkist okkar náttúrulegu húðfitu. Hún gengur vel inn í húðina, nærir og gefur raka og verndar húðina gegn þurrk. Hún er mild og róandi og hentar öllum húðtegundum.

Ólífu squalene: Lyktar- og litlaust fituefni úr ólífuolíu sem rétt eins og okkar húðfita getur verndað gegn rakatapi og stuðlað að góðu rakajafnvægi í húðinni. Hjálpar til við að halda heilbrigði húðarinnar og koma jafnvægi á fituframleiðsluna. Squalene getur einnig hjálpað til við að hægja á öldrun í húð.

Bakuchiol: 100% náttúrulegur valkostur við Retinól (A-vítamín), unnið úr jurtum og hentar mjög viðkvæmri húð og þeim sem þola illa Retinól. Bakuchiol getur dregið úr öldrunaráhrifum á húð og viðheldur góðu rakastigi í húðinni. Gefur mýkt og bætir áferð húðarinnar.

Frankincense jurtaextrakt: Endurnærandi og styrkjandi, getur dregið úr myndun fínna lína og jafnað húðtóninn. Mjög gott fyrir þurra og þroskaða húð.

Rós jurtaextrakt: Gefur húðinni næringu og raka, getur sefað bólgur og roða í húð. Getur dregið úr háræðasliti, er mjög gott fyrir viðkvæma og þroskaða húð.

Geranium ilmkjarnaolía: Getur hjálpað til við að koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar og dregið úr háræðasliti. Hentar bæði blandaðri og þurri og þroskaðri húð.

Framleitt og pakkað í Bretlandi í glerflösku með pípettu.

0
0