fbpx
Frí sending með Dropp ef þú verslar fyrir 15.000 kr eða meira!
Væntanlegt

Moya Matcha – Daily, Lífrænt Te

2.100 kr.

Hágæða lífræn Matcha með sterku grænu tebragði og langvarandi keim.

Fullkomið val fyrir áhugafólk um grænt te og tilvalið hráefni fyrir smoothies, ís og bakstur.

Kemur frá Japan og er 100% lífrænt vottað.

Vara væntanleg

Vörulýsing

Hágæða lífræn matcha með sterku grænu tebragði og langvarandi keim. Hefur sterkara og bitrara bragð miðað við hærri flokka af matcha. Matcha daily er fullkomið val fyrir áhugafólk um grænt te og tilvalið hráefni fyrir smoothies, ís og bakstur. Hágæða lífrænnt matcha úr  2. og 3. uppskeru úr teplöntum sem eru sérstaklega skyggðar fyrir beinu sólarljósi, skyggingin leiðir til hærra blaðgrænu og L-Theanine innihalds og sterkari grænum lit. Fersku laufunum er síðan safnað saman, þurrkað og malað í duft.

Upprunaland: Japan
Bragð: Sterkt grænt tebragð og langvarandi eftirkeimur
Mælt með í: Matcha latte, matcha límonaði, matcha kokteila, kökur, sælgæti, ís, súkkulaði
Innihald: 
100% lífrænt vottað matcha grænt te úr laufblöðum úr annari og þriðju uppskeru.

Magn: 30 gr.

Um Moya matcha

Moya Matcha Traditional er ræktað í Uji-héraði í Kyoto, en það er þekkt fyrir ræktun á hágæða grænu tei í yfir 800 ár. Uji-svæðið er frægt fyrir frjósaman jarðveg og hreint vatn. Grænu teplönturnar þar búa við kjöraðstæður til vaxtar þökk sé hæðum sem veita gott sólarljós og algengs þokumisturs sem verja viðkvæm blöð fyrir frosti og mikilli úrkomu. Moya Matcha er vandlega ræktað og uppskorið á litlum lífrænum teökrum í eigu hverra fjölskyldu. Það er síðan unnið á staðnum í Japan og sent í litlum lotum til að tryggja hámarks ferskleika fyrir allar tegundirnar okkar. Þetta hjálpar til við að varðveita alla eiginleika teblaðsins og viðhalda miklu magni steinefna og andoxunarefna.

Moya Matcha er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.

Tengdar vörur

0
0