Moya Matcha – Traditional, Lífrænt Grænt Te 30gr.
Moya Matcha Traditional er hágæða lífrænt matcha með bitursætu bragði, grænt að lit og með rjómalagaðri áferð.
Ríkulegt tebragð sem hentar fullkomlega til að drekka eitt og sér eða nota í smoothies og límonaði.
Kemur frá Japan og er 100% lífrænt vottað.
Vörulýsing
Vörulýsing
Upprunaland: Japan
Bragð: Yfirvegað og jafnt bragð með beiskjukeim
Mælt með í : Matcha athöfn, hentar í bæði heitt og kalt vatn, matcha latte, matcha límonaði, matcha kokteila.
Innihald: 100% lífrænt vottað matcha grænt te úr fyrstu og annari uppskeru.
Um Moya matcha
Moya Matcha Traditional er ræktað í Uji-héraði í Kyoto, en það er þekkt fyrir ræktun á hágæða grænu tei í yfir 800 ár. Uji-svæðið er frægt fyrir frjósaman jarðveg og hreint vatn. Grænu teplönturnar þar búa við kjöraðstæður til vaxtar þökk sé hæðum sem veita gott sólarljós og algengs þokumisturs sem verja viðkvæm blöð fyrir frosti og mikilli úrkomu. Moya Matcha er vandlega ræktað og uppskorið á litlum lífrænum teökrum í eigu hverra fjölskyldu. Það er síðan unnið á staðnum í Japan og sent í litlum lotum til að tryggja hámarks ferskleika fyrir allar tegundirnar okkar. Þetta hjálpar til við að varðveita alla eiginleika teblaðsins og viðhalda miklu magni steinefna og andoxunarefna.
Moya Matcha er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.
Hvernig bý ég til Matcha
Hvernig bý ég til Matcha
Hefðbundin japönsk teathöfn.
Felur í sér að nota matcha skál, bambus pískara (chasen) og bambus skeið (chashaku). Setja skal tvær skeiðar af matcha (1,5 g) í matcha skál og hella 100 ml af heitu vatni yfir. Vatnið á ekki að vera heitara en 80° gráður. Þeytið svo matcha kröftuglega með pískaranum, frá úlnliðnum í m-laga hreyfingu, ekki hringlaga. Eftir um það bil 20 sekúndur ætti að myndast fullkomin jade-græn froða. Ef þú vilt hafa teið daufara þá getur þú bætt við vatni eftir að hafa þeytt það.
Einnig er auðvelt að blanda matcha saman með litlum hand mjólkuflóara. Þá er bætt flatri teskeið af matcha (1,5 g) í bolla eða glas og 100 ml af heitu vatni bætt í glasið. Blandaðu vel saman og bættu meira vatni við ef þú vilt. 1 teskeið á að gefa 200-250ml af matcha drykk. Sumum finnst gott að drekka sterkan matcha espresso, aðrir vilja frekar bæta við vatni. Einnig er hægt að blandað matcha saman við safa eða mjólk.
Matcha í glerhristara eða í venjulegri flösku. Þá er matcha bætt við vökva að eigin vali (vatn, safi eða mjólk) svo skal hrista vel og þá er teið tilbúið!
Matcha Latte undirbúningur. Ein teskeið af matcha er blandað saman við lítinn skammt af heitu vatni. Svo er heitri mjólk bætt út í. Ef þú vilt sætt matcha latte þá er hægt að bæta við skeið af hunangi, hlynsírópi eða agave sýrópi.
Moya matcha traditional fæst úr fyrstu og annari uppskeru úr teplöntum sem eru sérstaklega skyggðar fyrir beinu sólarljósi. Skyggingin leiðir til hærri blaðgrænu og L-Theanine innihalds og ríkari grænum lit. Fersku laufunum er síðan safnað saman, þau þurrkuð og möluð í duft. Moya matcha traditional hefur yfirvegað beiskt/sætt bragð, rjómalagaða áferð og berggrænan lit. Bragðmikið teið er tilvalið að drekka eitt og sér eða blanda í latte, búst og límonaði. Það má útbúa með hefðbundnum hætti í matcha skál eða einfaldlega í hristara.